Leita Forsíða    Veftré    Hafa Samband
Minnsta leturgerð
Miðstærð letur
Stærsta gerð leturs
SMÞMFFL
2930311234
567891011
12131415161718
19202122232425
262728293012
3456789
September 2010

Skrifstofa Starfsgreinasambandsins

 

 

Skrifstofa Starfsgreinasambands Íslands er í Sætúni 1, 105 Reykjavík.
Sími: 5626410

Fax: 552 6830

Netfang: sgs@sgs.is

 

Starfsgreinasambandið, samband almennra verkalýðsfélaga.

 

Við stofnun Starfsgreinasambands Íslands voru aðildarfélög þess 43.  Strax á fyrsta ári sambandsins urðu miklar breytingar á aðildarfélögum og ný félög gengu í sambandið. Frá árinu 1996 hefur almennum verkalýðsfélögum fækkað úr 65 í 20 félög. Og enn eru félög að sameinast; Þann 1. janúar 2008 sameinuðust, Vlf. Vaka á Siglufirði Einingu-Iðju við Eyjafjörð og Vlf. Húsavíkur og nágrennis sameinaðist Verslunarmannafélagi Húsavíkur í Framsýn stéttarfélag 1. maí það ár. Vlf. Stjarnan, Vlf. Snæfellsbæjar og Vlf. Stykkishólms, sameinuðust í eitt nýtt félag, Verkalýðsfélag Snæfellinga 22. október 2008. Verkalýðs- og sjómannafélagið Boðinn sameinast Eflingu-stéttarfélagi þann 1. janúar 2009. Vlf. Hrúatfirðinga var sameinað Stéttarfélaginu Samstöðu 31. október 2009. 

 

Aðildarfélög SGS eru nú 19 með um 53 þúsund félagsmenn

Efling-stéttarfélag, Vlf. Akraness, Stéttarfélag Vesturlands, Vlf. Snæfellinga, Vlf. Vestfirðinga, Vlsfél. Bolungarvíkur, Stéttarfélagið Samstaða, Vlf. Aldan, Eining-Iðja, Framsýn stéttarfélag, Vlf. Þórshafnar, Afl-starfsgreinafélag, Vlf. Suðurlands, Báran stéttarfélag, Drífandi stéttarfélag, Vfl. Grindavíkur, Vlsfél. Keflavíkur og nágrennis (VSFK), Vlsfl. Sandgerðis og Vlf. Hlíf.

 

Samkvæmt skýrslum félaga sambandsins 1. jan. 2008, eru aðildarfélög sambandsins með alls 53.637 félagsmenn sem er fjölgun um 532, eða 1% frá árinu 2007 en þá voru félagsmenn 53.105.  1. janúar 2009 voru félagsmenn hins vegar 53.182. Af félagsmönnum aðildarfélaga SGS eru karlar nú 23.526 eða 51% og konur 22.565 eða 49%. Að auki eru gjaldfrjálsir félagsmenn nú 7.091 eða 13,33%, þar af konur 4.682 eða 66 % og karlar 2.409 eða 34% gjaldfrjálsra.

 

SGS er stærsta landssamband ASÍ.

SGS er stærsta landssamband innan ASÍ.  Á ársfundi ASÍ 2008 var vægi fulltrúa SGS 42,5% eða 124 fulltrúar af 292. Það er nú, árið 2009, 38,7% eða 112 fulltrúar af 292.